23.1.2009 | 18:51
back to school
Elsku þið öll sömul
Nú er ég komin aftur til New York og fyrsti bókasafnsdagurinn framundan. Takk æðislega fyrir yndislegan tíma á Íslandi yfir jólin :) Mér finnst þetta hafi verið hið fullkomna frí og er ég alveg endurnærð :)
Ég brallaði ýmislegt...
djammaði smá ;)
borðaði fullt af góðum mat ;)
...og aðallega naut þess að eyða tímanum með fjölskyldu og vinum :)
Nú eru framundan spennandi tímar hjá mér! Mér lýst hörkuvel á komandi önn...miklu skemmtilegri kúrsar en síðast, minni bekkir, fleiri verkefni og færri próf! Svo þarf ég bara að vera dugleg í atvinnuleitinni... ég er laus um miðjan júlí... þannig að ef þér dettur eitthvað í hug þá endilega hafðu samband 
Svo er alltaf nóg að gera í social lífinu og virðist komandi helgi vera orðin þétt bókuð
En þangað til næst!
xoxo
Sigrún
P.S. ég er ekki frá því að ég hlakki svolítið til að fá svona veður aftur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.11.2008 | 06:28
Fyrsti í thanksgiving...
já það getur alveg verið stórskemmtilegt að versla á miðvikudagsmorgni í henni stóru ameríku...
Hildigunnur í tómatalandi
Sjáið hvað það er gaman hjá mér! valhoppa alveg
Í ameríku eru kalkúnar með innbyggða hitamæla ... haha ... ætli þeir fæðist svona hentugir eftir allar erfðabreytingarnar ?
Mér fannst pínulítið vera að misþyrma jólasteikinni minni þar sem ég fylgdist með fólkinu troða fuglinum í innkaupa bréfboka áður en hann fór í ofninn! Einnig var allt meðlætið pakkamatur ... sem ég var ekki alveg að gúddera!
En þrátt fyrir þetta þá varð úr þessu skemmtilegt kvöld með skemmtilegu fólki 
Ég kveð að sinni frá eplaborginni...
xoxo
Sigrún sem er skandinavísk í útliti - ótrúlegt en satt 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.11.2008 | 00:11
EKKI MINN DAGUR !!
- Það gladdi mig afskaplega mikið þegar ég fór í tíma áðan að frétta það að í stað þessa sleppa okkur við heimadæmi yfir hátíðarnar (það er Thanksgiving næstu helgi) þá ætlar einn kennarinn minn að láta okkur skil tveimur! ... þrátt fyrir að það sé frí í dæmatímanum þar sem er farið yfir efnið.
- Ég var að enda við að henda matnum mínum í gólfið og tapa þar með helmingnum af honum
- Það sagði mér einhver einhvertíman að maður myndi aldrei losna við hálfvitana! Það er allt morandi af þeim í grunnskóla og menntaskóla, aðeins færri í háskóla en einhvernvegin stóð ég í þeirri meiningu að það væri ágætis síun hérna í einum virtasta háskóla í heiminum, sérstaklega í framhalsnámi! Bara svo það sé á hreinu þá hafði ég rangt fyrir mér!
Umrædd manneskja sem vakti upp þessa reiði hjá mér er með mér í hópverkefni! Hann hefur voða gaman að því að gagnrýna, reka á eftir koma með hugmyndir án þess að hafa nokkurn vilja til að gera neitt sjálfur! Þessi ummrædda manneskja býr einmitt líka á hæðinni minni og eftir að hann komst að því að líklega væri eitthvað vit í kollinum á mér er hann farinn að stunda það að banka upp á hjá mér á mánudagskvöldum og biðja um heimadæmin mín... kannski er sögnin að biðja ekki alveg nógu lýsandi! Ég byrti hér e-mail sem ég fékk frá honum síðasta mánudagskvöld: I needed your help in simulation homework. What time will you be available in your room so that I can drop by?
Já þegar að hann bankaði upp á áðan laug ég nú bara blákalt að honum að ég væri ekki byrjuð á verkefninu

Maðurinn sem ber ábyrgð á reiðipunkti nr. 1
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.11.2008 | 02:43
Yndisleg helgi :)
Ég blogga og blogga og þið hafið ekkert að segja?
...nema þú Þórhildur mín, takk fyrir kommentið 
Mest allur október-mánuður fór í próflestur og miðannarpróf! Þetta er soldið skrítið hérna í ameríkunni, miðannarprófin gilda jafn mikið og lokaprófin en þrátt fyrir það eru þau bara tekin í tímum og ekkert hægt á kennslu né verkefnaskilum á meðan! Þetta var því pínu stressandi en fór allt ágætlega, nema helst í einu fagi ... en þá þýðir ekkert annað en að bretta upp ermarnar og rústa lokaprófinu!
Eftir síðasta prófið var löng helgi í skólanum í tilefni af forsetakosningunum og var ég svo heppin að fá Möggu mína í heimsókn! Þrátt fyrir lítið pláss (10 fm) skemmtum við okkur alveg konunglega og var þessi helgi algjör hápunktur þess tíma sem ég hef verið hérna!
Eg tók helgina snemma þrátt fyrir að Magga kæmi ekki fyrr en á laugardagskvöldi og byrjaði á að fara út að borða með hóp af fólki sem er með Hildigunni í bekk, herbergisfélaganum hennar henni Jodsnu og Astrid nágranna mínum og vinkonu.
Skál í botn !
Á föstudeginu var svo aðeins skroppið í skólann og svo var Hallowean! Ég er lúði og var ekki í neinum búning en kíkti í árlegu skrúðgönguna í Grenage Village! Það var nú reyndar bara ávísun á innilokunarkennd og hópurinn splittaðist svo fljótlega upp sökum mannmergðar. Ég meira að segja tók upp á því að hoppa yfir grindverk til að losna úr þvögunni, sem er nú kannski ekki alveg lýsandi fyrir mig... þannig að það segir kannski eitthvað um ástandið! En við sáum ýmsa skrautlega karaktera og hittum einnig íslenska handboltalandslið á leiðinni heim af ólympíuleikunum! 
gaur - ég - Lindy - gaur
Þessir laumuðust inn á myndina okkar!
ÁFRAM ÍSLAND !!!
Mirkov trúður :)
Laugardagurinn áður en að Magga kom var alveg yndislegur dagur. Fór með 10 krökkum úr skólanum niðrí China Town í Dim Sum, sem er víst einskonar kínverksur Brunch! Var nú ekki alveg að fíla matinn og leið alveg eins og bjáni þarna með tíu asískum einstaklingum, en þetta var upplifun!
Ég að borða kjúklingalappir
... ekki alveg það besta sem ég hef smakkað á ævinni
Næst röltum við yfir í Soho og versluðum aðeins! Ég fann mér loksins kápu og ýmislegt fleira sem var aðeins meira óþarfi. Við röltum svo niður Bleacker St. sem er voða sæt gata í Grenage Village og enduðum á að kaupa okkur cupcake í Magnolia Bakery þar sem að SATC gellurnar voru víst fastagestir! Þetta er svo frægt bakarí að við biðum í korter eftir að fá að komast inn og svo mátti bara hver og einn kaupa 12 kökur... haha ekki alveg þeir verslunarhættir sem maður á að venjast! En þetta voru ágætis kökur, ekkert mikið meira en það!
Um kvöldið mætti Magga svo á svæðið og við skelltum okkur á svakalegt djamm! Það tók soldið langan tíma fyrir okkur að koma okkur niðrí bæ (við erum nú á annað borð Íslendingar) og vorum ekki komnar niðrí bæ fyrr en tvö og það ekki áfallalaust! Við byrjuðum á að fara út að borða og stúta einni hvítvínsflösku á mettíma og lögðum svo af stað í lestina með Kamshim, Astrid og Joyce... sem er bara gott nema við (ég) gleymdum Þórð, Daða, Ásgeir og Hildigunni! Hildigunnur og Ásgeir áttu það nú svosem skilið því þau beiluðu... kannski af því að þau þurftu að bíða svo lengi eftir okkur
Það kom okkur svo skemmtilega á óvart að það var ákkúrat verið að rétta af klukkuna fyrir veturinn og við græddum heilann klukkutíma (sem betur fer þar sem allt hérna lokar stundvíslega klukkan 3.
Við hittum Gísla, Kidda og vin hans Simma í bænum og skemmtum okkur konunglega! Mér tókst að fá númerið hjá dópsala og Möggu að sannfæra einhvern saklausan barþjón um að það væri allt í lagi að reykja inni :)
Næsta degi eyddum við í þynnkunni og versluðum í Soho! Enduðum svo daginn á klikkuðu Sushi á Times Square þar sem okkur tókst að láta selja okkur vatnsflösku á $8 ... mig langar ekki einu sinni að vita hvað það er í krónum þessa dagana 
Magga að ráðast á Susihið
Mánudagurinn var án efa afkastamesti dagurinn ferðarinnar! Við byrjuðum daginn snemma á Starbucks. Tókum svo túristabrjálæði á þetta og fórum um alla borgina... röltum á lower east, skoðuðum Wall Streat og Ground Zero, löbbuðum yfir Brooklyn Brigde, fórum aftur á Starbucks, skoðuðum skautasvellið í Rockafellar Center, fórum upp í Top of the Rock sem var algjör snilld ... brjálaðasta útsýni sem ég hef séð á ævinni! Ég sleppti Möggu svo lausri í smá stund í búðirnar á 5th Avenue og við enduðum svo kvöldið á að hitta Hildigunni, Ásgeir og Þórð í bestu hamborgara í heimi og svo drukkum við dýrustu kokteila í heimi!
Upp rann þriðjudagurinn og við alveg örmagna úr þreytu eftir síðustu daga! Þetta var stór dagur í heimssögunni enda Barack Obama kosinn fyrsti svart forsetinn í sögu Bandaríkjanna. Við biðum eftir úrslitum á I-house barnum og kíktum svo á stemminguna í Harlem þegar úrslitin voru ljós. Það var þvílík upplifun og fann maður gleðina og vonina skína úr hverju andliti... Fagnaðarlátunum er ekki alveg hægt að lýsa í orðum en hér er smá myndband sem ætti að gefa ykkur smá hugmynd um andrúmsloftið:
Við kíktum líka niður á Times Square og svo í Rockafeller Center en við misstum aðeins af stemmingunni þar. Ótrúlegt en satt þá var ekki mikið um fyllerí og göturnar eiginlega tómar fyrir eitt... Held að það hefði þróast eitthvað öðruvísi á Íslandi!!
Ég kvaddi svo Möggu daginn eftir frábæra daga ... takk fyrir heimsóknina Magga mín, vona að þú hafir skemmt þér vel
Vikurnar síðan hún fór hafa ekki verið mjög viðburðarríkir, hef aðallega reynt að koma mér aftur í lærugírinn því að því miður styttist í lokapróf! Þau verða hressandi þar sem að ég þarf að taka 3 próf á 27 klst, í fyrstu leit út að þau myndu öll fjögur raðast á þessa umtöluðu 27 klst en ég var svo heppin að þeir færðu eitt ... þannig að ég þarf BARA að fara í þrjú! haha þetta er eiginlega fyndið ...
Þangað til næst...
xoxo
Sigrún í Eplaborginni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.11.2008 | 12:08
Fall fiesta
Um miðjan október tók ég mér spá pásu frá prófalestri og tók þátt í árlegum atburði hérna í I-house, Fall Fiesta. Skemmtunin var tvíþætt, annarsvegar var tískusýning á þjóðbúningum og hins vegar danssýning á hinum ýmsu dönsum upprunin frá ólíkum löndum.
Ég reyndi að halda uppi heiðri Íslendingana á þessum vestu tímum og sýndi þjóðbúninginn hennar ömmu. Þetta er upphlutur sem langaamma Pálína átti og notaði við öll helstu tækifæri! Gullið kom hins vegar frá langalangaömmu Láru og því líklega smíðað um aldamótin þarsíðustu! Kynnirinn gerði grín að því að ég hefði flogið sérstaklega til Íslands bara til þess að ná í búninginn bara fyrir Fall Fiesta! Útlendingar eru svo auðtrúa að margir eru búnir að stoppa mig á göngunum til að spyrja hvort að þetta hafi verið satt, bara síðast í gær ... mánuði síðar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2008 | 11:23
Íslandsheimsókn
Frá því að ég skrifaði síðast er margt búið að ganga á! Október-mánuður byrjaði á frábærri heimferð en kannski ekki á besta tíma! Þetta var ákkúrat helgin sem ráðherrarnir lokuðu sig inni í ráðherrabústaðnum til að ákveða örlög þjóðarinnar og allir nöguðu neglurnar meðan beðið var eftir fréttum! En ég lét það ekki á mig fá og naut helgarinnar í botn, þrátt fyrir takmarkaðan tíma. Þetta fór eiginlega þannig að ég svaf varla neitt og kom dauðþreytt til baka beint í skilaverkefnatörn og prófalestur! Kannski ekki besta hugmynd í heimi en klárlega þess virði :)
Eyddi helginni aðallega í faðmi fjölskyldi og vina :) Reyndi að knúsa öll litlu krílin mín sem ég sakna svo mikið hérna í barnlausu borginni og bara að njóta þess að vera til! Ég þakka bara öllum fyrir mig, fékk ekkert smá góðar móttökur :)
Á föstudeginum tók ég smá rúnt og heimsótti Tinnu og svo Írisi! Íris var svo glöð að sjá mig að hún rauk beint út í bónus ... en í staðin fékk ég að passa Matthildi bestustu :)
Birta og Lena sætu frænkur
Fallega Matthildur krúsímús
Kristrún bauð í smá hitting heim til sín! Bakaði heilsusamlega franska súkkuleðiköku og við spiluðum Jungle Speed... sem er btw skemmtilegasta spil í heimi geimi!
Er kristrún keppnismanneskja? neiiii það getur ekki verið ! haaaa ? 
Kristrún & Gylfi komu í heimsókn með strákana á laugardeginum! Tristan Máni var nýkomin af íþróttaálfa skemmtun...
Mamma og Mikael Logi
Næst á dagskrá var matarboð í Margargrund! Það var ekkert smá æðislegt og langþráð! Því miður voru Vall, Hanna Lóa og Vignir Fannar akkúrat í Róm þessa helgi en ég náði sem betur fer að smella á þau smá kossi áður en þau brunuðu út á völl.
Á boðstólnum var þessi dýrindis súpa sem ég var búin að panta frá ömmu! Páll var ekki par sáttur með það að amma hefði soðið nautasteik og sett í súpuna, fannst það greinilega aðeins of mikil sóun á góðri steik... en ég var alsæl
Í eftirrétt voru svo pönnukökur með sykri, einnig sérpöntun frá dekurdósinni mér!
Krakkarnir ávallt hressir !
Um kvöldið kíkti ég á kaffihús með Berglindi, Möggu og Þórhildi! Gott að kíkja aðeins út og heyra allt nýjasta slúðrið! Reyndar var ég ekki alveg að fatta að ég var komin til Íslands og var skítkalt allt kvöldið. Eina sem rataði nefnilega ofan í ferðatöskuna voru opnir skór og sumarkjólar sem hentaði ekki mjög vel þar sem að það snjóaði alla helgina! WTF? Síðast þegar ég vissi er ennþá haust í oktober, ég er kannski eitthvað að misskilja?!?
Sunnudagurinn hófst með glæsilegum brunch í Ljósulind! Þar var mikið fjör en það sem helst stendur upp úr er sú snilldarhugmynd Heklu og Rakelar að mála strákana! Þetta eru nú meiru snillingarnir!!
Restin af deginum fór svo í leti og að knústast í fjölskyldunni! Kíkti aðeins á rúntinn, en það er eitthvað sem ég sakna frekar mikið hérna í stórborginni.
Ég flaug svo alsæl heim á mánudeginum, algjörlega endurnærð 
Enn og aftur... takk fyrir mig öll sömul! Nú styttist í jólafríið og hlakka ég til að endurtaka þetta allt saman! Sakna ykkur allra svo mikið...
xoxo Sigrún
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2008 | 20:34
Nýjar myndir
Hæ hæ
Komnar nýjar myndir á facebook, linkar til hliðar ==>
Er í miðjum prófum, það síðasta er á miðvikudaginn! Þannig þið getið búist við nýju bloggi von bráðar
Svo eru bara sex dagar í Möggu ... JABADABADÚ :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.10.2008 | 01:35
Tóm hamingja ...
Já gengishækkanir og markaðshrun eru ekkert að hafa áhrif á fína fólkið í New York því að ég og Hildigunnur skelltum okkur í andlitsbað og nudd í dag ... NICE ! (ég gæti að vísu sagt ykkur að við fengum þetta á mjög ódýrum prís, nuddið sem átti að vera 20 mínútur reyndust vera 12 og þetta var eins og að slappa af inn á miðju byggingasvæði út af öllum látunum í hárgreiðslukonunum... en það gerir bara söguna minna kúl þannig að ég sleppi því
) Ég allavega naut þess í botn og kom endurnærð aftur í skólann, svo afslöppuð að ég sofnaði í tíma 

Eftir að ég kom heim er ég svo bara búin að flatmaga upp í rúmi, spjalla á msn og skype til skiptist en er nú farin að hugsa um að skella mér í að læra ... hmmm ... eitthvað smá allavega (held ég hafi lært yfir mig um helgina)
Annars get ég hvorki staðið né setið því ég er svo spennt að koma heim... iða öll barasta!
Annars hef ég ekkert að segja, langaði bara að monta mig af dekrinu mínu
Sigrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.9.2008 | 04:24
Countdown
Jahérna hér, ég fer heim eftir 5 daga! Er að springa úr spenningi ;) Hlakka svo mikið til að sjá alla, líður eins og ég sé búin að vera í burtu í 100 ár!
Þessa dagana snýst flest um að reyna að læra sem mest svo ég þurfi ekki að vera að læra meðan ég er á Íslandi! Skil ekki af hverju kennararnir slaka ekki á í verkefnunum þar sem ég er á leið í helgarfrí pfffff 
En ég er þó búin að gera eitthvað síðan að ég skrifaði síðast og er þemað klárlega Ísland! Enda er Ísland best í heimi 
Fimmtudaginn fyrir rúmri viku bauð Ragnheiður í Íslendingapartý en hún er búin að vera hérna í nokkur ár í doktorsnámi í tölfræði :) Það var mjög gaman og fullt af hressum Íslendingum í New York greinilega. Ég fékk líka nóa siríus konfekt sem skemmti ekki fyrir ;) Við kíktum svo á bar bara rétt hjá skólanum og var mín ekki komin heim fyrr en hálf fjögur og fullyrti bjartsýn að hún skildi sko mæta í dæmatíma kl 10! hehemm, að því varð víst ekki 
Á laugardeginum var svo Íslendingagrill á vegum Íslendingafélagsins í New York. Á boðstólnum voru SS pylsur með öllu tilheyrandi og einning ekta íslenskt prins póló ;) Þar hitti ég ennþá meira af hressum Íslendingum, ég er hætt að trúa því að við séum bara 320.000! Mér fannst rosa gaman að sjá annan hluta af New York, það er eins og að koma í annan heim að koma út af Manhattan og Brooklyn virtist vera mjög sjarmerandi svæði. Það tók samt lúmskt langan tíma að komast þangað og fannst mér ég hafi eytt hálfum deginum neðanjarðar!
Síðast en ekki sýst kom Ólafur Ragnar Grímsson í heimsókn í Columbia á mánudaginn. Hann hélt skemmtilega og fróðlega ræðu um endurnýtanlegu orkuauðlyndir og lagði svo sérstaka áherslu á að litlar þjóðir væru ekki síður mikilvægar í baráttunni við vandamál heimsins. Hann hafði margt áhugavert að segja og allir greinilega mjög ánægðir eftir á, Íslendingar jafnt sem útlendingar! Svava Grönfeldt ásamt fylgdarliði úr HR var þarna að skrifa undir samstarfssamning við Columbia þannig að maður fylltist tvöföldu stollti, af því að vera Íslendingur og HR-ingur
Eftir á var smá móttaka til heiðurs President Grimsson og á boðstólnum var þessi ansi fíni virgin ananas mohito... sjáið þið ekki hvað við erum ánægðar með þetta:
Á sunnudaginn var Sunday supper hérna í I-house. Þetta er mjög skemmtileg
hefð hérna sem á rætur sínar að rekja aftur til 1909. Þetta byrjaði víst þannig að maður að nafni Henry Edmons sem hitti einmanna nema úti á götu
sem sagði honum að hann væri fyrsti maðurinn sem hafði talað við hann að fyrra bragði frá því að hann kom til New York, mánuði fyrr. Henry tók þetta svo inn á sig að hann fór að bjóða erlendum stúdentum úr Columbia í matarboð til sín á sunnudögum. Þetta þróaðist svo út í að International House var byggt og er Sunday Supper er ennþá fastur liður þar á bæ, tæpum 100 árum síðar! Ég var ekkert smá ánægð með þetta, ekkert smá ánægð með að fá að klæða mig í fínan kjól og vera á hælum - það þýðir sko lítið að vera á hæl um hérna í New York þar sem maður labbar svo mikið!

Helgin er búin að vera afar róleg hjá mér! Bara heimadæmi, heimadæmi, heimadæmi! Ekki það sé ekki nóg að gera í borginni sem aldrei sefur! Í gær var mér boðið á einhvern klúbb (þemakvöld í anda Kill Bill myndanna) og í kvöld í roofparty niðri á lower east og í innflutningspartý nr. 2 hjá skrítnu frökkunum! En það er víst ekki hægt að gera allt...
Á morgun er stefnan tekin á þvottadag, smá bæjarferð og svo er mér boðið í mat heima hjá Hildigunni. Sambýliskonan hennar ætlar að elda ekta indverskan mat... mmmm ég er ekkert lítið spennt 
Kveð að sinni úr rigningunni í stóra eplinu
Sigrún
P.S. læt fylgja með sætustu mynd í heimi af yndislegu fjölskyldunni minni sem ég fæ að hitta eftir nokkra daga
jeiiiii....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.9.2008 | 05:25
Innflutningspartý ?
Var að koma heim úr mjög undarlegu boði. Ég er búin að kynnast stelpu úr bekknum mínum sem býr á sömu hæð og ég í I-house. Hún bauð mér að koma með sér í innfluttningsmatarboð hjá nokkrum frökkum úr skólanum og ég ákvað að slá til þrátt fyrir að finnast soldið undarlegt að mæta þarna án þess að þekkja neinn!
Okkur var sagt að koma kl 21:30, soldið seint til þess að borða en margir hérna eru svo seint í tímum að við létum það ekkert á okkur fá! Svo mætum við, ákváðum að vera á réttum tíma þar sem þetta var svona seint og nei nei, sá sem bauð henni var ekki heima og bara einhverjir tveir herbergisfélagar hans sem vissu ekki einu sinni að við værum að koma!!! Þau sögðu reyndar að hann væri út í búð að kaupa í matinn þannig að þau buðu okkur inn og voru bara næs... Þetta var mjög fín íbúð, meira að segja á íslenskan mælikvarða, en þarna voru ENGIN húsgögn fyrir utan eitt rúm í hverju herbergi. Svo loksins þegar gestgjafinn kom sér heim þá byrjaði hann að elda og krafðist þess að við myndum skræla kartöflurnar!! Fyrir þá sem ekki vita þá kann ég alveg ágætlega við mig í eldhúsinu nema að ég skræla ALDREI kartöflur... af því að ég hef einhvernvegin alltaf borðað hýðið (ý? i? lena?). Anyway, þá gekk það hálf brösulega en hófst að lokum... Maturinn mætti svo á "gólfið" á miðnætti og við borðuðum af bestu lyst :)
Allavega, farin að sofa...þarf að mæta í tíma eftir nokkra klukkutíma!
Góða nótt
Sigrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eldri færslur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 6744
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Myndir
- löng helgi í byrjun nóvember Próflok og Magga í heimsókn
- Fall fiesta
- Ísland - október 2008 stutt heimsókn heim
- New York - September Íslendingapartý, Íslendingagrill, Sunday Supper, Ólfafur Ragnar...
- Úr öllum áttum Gamlilr og nýjir gullmolar :)
- New York III Welcome party, obama o.fl.
- New York II fyrsta djammið o.fl.
- New York Fyrstu dagarnir
Mínir tenglar
- Berglind Ösp
- Berglind í Köben
- Birgitta og Pálmi í Köben
- Birta Líf
- Elín María Ellus í Sverige
- Emilía í USA
- Hansi
- Hildigunnur Hildigunnur í NY
- Kiddi Magg
- Lenarður í Horsens
- Matthildur Embla
- Raggi sænski
- Rósa Dögg
- Tristan Máni a.k.a. T-Moon
- Þórður í New York
- Örvar


bergrun




